Nýtt met í heimsóknum .....


 

 

 

 
...eða í fjölda heimsókna á síðuna mína, var sett í gær...var að vona að margir litu inn og hugsuðu sér nær...mér varð að ósk minni...ég held kannski....

 

 

 

 

 

 

 .... að umræðan er of erfið og að fólk þori ekki útí þessa iðu.....að  gagnrýna  lögregluna.

 

 Ég skil það og þakka ykkur fyrir innlitið,  það veitir mér styrk......

      

 .......að vita af því að ég er ekki ein....
 

 

 

 

 

 

 

 

 ....

  ........ þó að í feluleiknum mínum, um mig sé ég búin að mála mig útí horn....þá finn ég meðbyr áður óþekktan ....kannski er ég bara orðin gömul og klár....veit að lífið er endalaus barningur...og það er núna eða aldrei..

  

 ..... kannski er eina vitið að koma útúr skápnum....og gefa upp nafn mitt...auðvitað.........


Hennar orð - Lögreglan lögbrjótur

Saksóknari er búinn að kveða upp sinn dóm í þessu máli og lætur það falla niður í þagnarsekkinn stóra. Lögreglumennirnir fá áminningu útaf nokkrum atriðum, hvað sem það nú þýðir.

Hér má lesa hennar lýsingu á því sem gerðist sl. föstudag: 23.02.2007.

"jæja

Hef kvartað undan ýmislegu að undanförnu en núna er mér gjörsamlega nóg boðið. Það er eitt að misnota vald sitt en hvaða svívirðing að gera það í nafni laganna. Þó ég hafi ekki alltaf verið sammála gjörðum lögreglunnar í ýmsum málefnum og tel björgunarsveitirnar eigi að sjá um sem mesta löggæslu í landinu hef ég oft talað máli lögreglunar og sagt að þar hljóti að vera gott fólk, alveg eins og öllum örum starfsstéttum.

Eftir reynslu minni af lögreglunni um helgina er ég samt byrjuð að stórlega efast um að það finnist lögregluþjónn með siðferðiskennd á eyjunni okkar góðu, allavega var sá lögregluþjónn ekki á vakt á föstudagskvöldið var.

Kvöldið byrjaði ágætlega. Ég, Hanna og Pétur skruppum saman út í nokkra bjóra. Ekkert óeðlilegt við það enda ekki mikið annað hægt að taka sér fyrir hendur á kvöldum sem þessum. Hittum vinkonu okkar á Q bar og ætluðum öll að fara saman á næsta bar. Pétur skrapp inn á prikið til þess að nota klósettið en ég beið fyrir utan. Þar hitti ég vin minn frá því ég var 7 ára spjallaði smá við hann.... undir endan förum ég og vinkona mín inn til þess að svipast eftir Pétri en er ég þá tekinn höndum af einhverjum úturrugluðum dyraverði og sökuð um að hafa kílt einhverja gellu.... Þegar ég neita og vinkona mín segir við hann að við höfum verið saman allan tíman og það hafi ekki geta gerst heldur hann því framm að ég hafi einnig verið þar seinnustu helgi að stinga einhvern gaur með skrúfjárni. Vandamálið er að ég var á Selfossi seinustu helgi í opnunarpartíi Tonys og hef ekki drukkið síðan í Desember.

Dyravörðurinn sem leit útfyrir að vera úturdópa steratröll henti mér því út og niður á götuna.... þar sat þetta svín á mér með eithvert fantatak og hótaði á mig löggunni. Ekki var ég smeyk við hana enda hafði ég ekkert gert en var samt ekki sam sáttust við prísundina svo ég barðist mikið um og gerði allt sem í valdi stóð til þess losna við að sleikja götuna. Löggan tók hins vegar sinn tíma eins og venjulega svo þarna lág ég með þennan viðbjóð ofan á mér í hátt í hálftíma. Þegar löggan loksins kom á sinni maríu var ég sett beint í handjárn og inn í bíl. Ég fyrstu reyndi eg að útskýra fyrir lögreglunni hvað hefði gerst en eftir að hafa fengið að heyra svívirðinar um mig og minn húðlit og komment ein og hvers konar negralýð væri verið að hleypa inni í landið var mér nóg boðið. Svona fær engin að taka við mig og sérstaklega ekki fólk með völd... hversu svört sem ég er borga ég líka skatta í þessu landi og krefst þess að vera sýnd sú virðing sem aðrir íbúar fá.

Inn í bílum var mér strax hótað að verða sett inn á þriðju hæð, sem er þekkt fyrir myndavélaleysi og ofbeldi. Þá reyndu vinir mínir að tala mínu máli en sem hefði svo sem geta gengið og ég fengið að fara beint heim en eftir allt þetta virðinarleysi var ég alveg tilbúin að fara niður á stöð og tala við vaktsjórnann um hegðunn eða hegðunnarvandamál manna hans. Það var ekki hins vegar ekki svo góð hugmynd því ef lögreglumaðurinn var sonur djöfullsins var varstjórinn pabbi hans!!!!!!
Á endanum var ég bókuð og sett í varðhald. Það var hins vegar eitthvað hernaðarleyndarmál fyrir hvað ég var handtekin og sama hvernig ég spurði þá var það kurteisasta svarið sem eg fékk að það kæmi mér ekki við.

Mér var því bókstaflega hent inn inn í kefa... eins og marblettirnir á líkama mínum sína og látin dúsa þar. Hins vegar var ég orðin nett prirruð á allri þessari framkomu svo ég hríngti bjöllu sem staðsett var inn í klefanum mínum... ekki vildi sú mannesja hlusta á mig heldur og hætti að svara hringingum mínum. Tók ég því til þess ráðs að nota 50 kall sem eg var með í vasanum til þess að rispa í hurðina... komu þá ekki þjónarnir að vörmu spori og vildu peninginn. Ekki vildi eg efhenta hann og þá var eg tekin niðir og leytað á mér.... bæði af karl og kvennkyns þjónum og móti þá engu skipta þó eg heimtaði leitarheimild frá dómara. 50 kallinum náðu þeir nú samt ekki enda er ég nískur negri sem passa upp á mína peninga.

Því næst tóku þjónarnir á það ráð að klæði mig úr fötunum. Þegar ég neitaði var mér bara haldið niðri og klædd úr með valdi.... og nærfötin mín klippt í burtu. Þetta var auðvita gert með miklum átökum enda vil ég helst halda fötunum mínum og virðingu. Þá tók hins vegar perraskapur lögreglunnar öll völd, og settir voru upp hanskar til þess að leyta upp í leggöngunum mínum. Nei nei nei..... þetta var náttúrulega ekki að fara að gerast og fékk gellan nokkur álitleg spörk í andlitið. Gefist var upp á þessu en í hefndarskyni var teppið og dýnan tekin af mér og ég látin dúsa þarna í nokkra tíma alls nakin.

Greinilegt er að lögreglan í miðbænum hefur tekið sér til fyrirmyndar starfsaðferðir fangavarðanna í Guantanamo. Ég viðurkenni fúslega að ég var ekki upp á mína bestu hegðun en ég stóð í þeirri trú að lögreglan ætti að kunna að höndla ölvað fólk ekki pinta og svívirða."

Lög nr. 19/1991:

32. gr. 1. Skylt er að gefa sakborningi upplýsingar um kæruefni áður en hann er yfirheyrður út af því eða við handtöku ef til hennar kemur. Maður, sem handtekinn hefur verið í þágu rannsóknar opinbers máls, á rétt á að hafa samband við lögmann eða annan talsmann sinn, sbr. 37. gr., þegar eftir handtöku.

92. gr. 1. Leita má á sakborningi ef nauðsynlegt þykir til að taka af honum gögn eða muni sem hald skal leggja á. Leiki grunur á að maður feli innvortis muni eða efni sem hald skal leggja á er heimilt að framkvæma leit, að fengnu áliti læknis. Þá má taka blóð- og þvagsýni úr sakborningi og framkvæma á honum aðra þá líkamsrannsókn í þágu rannsóknar sem gerð verður á honum að meinalausu. Enn fremur má taka af honum fingraför og myndir í þágu rannsóknar.

93. gr. 1. Leit og líkamsrannsókn skv. 92. gr. skal ákveðin í úrskurði dómara, nema sá sem í hlut á samþykki hana.
3. Við leit skal gæta þeirrar varfærni og hlífðar sem samræmist markmiði hennar. Ekki skal gera húsleit að næturþeli nema mjög brýn nauðsyn sé á og sakarefni stórfellt. Leit innan klæða skal gerð af manni sem er sama kyns og sá sem leitað er á.
4. Leit innvortis, taka blóðsýnis og aðrar samsvarandi aðgerðir skulu framkvæmdar af lækni eða hjúkrunarfræðingi.

Lögreglan er lögbrjótur, fasistar og ekki til þess að sýna nokkra virðingu. Héðan í frá mun ég ekki á neinn hátt aðstoða lögreglu, né heldur koma fram við hana af þeirri virðingu sem þeir heimta. Svona menn eiga enga virðingu skilda. Skorrdal


Hélt að ég

ætti aldre eftir að hlæja að þessum Bandit

Þú ert svo mikið sem............

 Rakst á fínt próf hérna í rafheimum, Hvernig kaffi ert þú eiginlega?  Það besta við prófið er að ég er gott kaffi Smile Ég er ánægð með niðurstöðuna, allavega ef ég er kaffi þá er ég espresso

Þú ert svo mikið sem...

Espresso!

Þú ert með eindæmum sjálfsöruggur einstaklingur. Þú ert vandvirkur og samviskusamur en lætur það þó stundum eftir þér að fresta verkefnum til morguns. Þú ert á sífelldri hraðferð án þess þó að það hái þér á nokkurn hátt.

Þú ert 30 ml af mikið brenndu eðalkaffi.

Hér fylgir vottorð sem staðfestir að þú hefur tekið og staðist kaffiprófið. Til að sýna vottorðið á vefsíðunni þinni getur þú afritað HTML kóðann úr boxinu fyrir neðan.

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Espresso!
30 ml af mikið brenndu eðalkaffi. Cool

Borgarstarfsmanna samanburður fyrsta umferð

  Ég er með dæmi sem miðast við tvo borgarstarfsmenn, annar er  varaborgarfulltrúi og situr í einu ráði borgarstjórnar til dæmis menninga og ferðamálaráði.                                                        Starfsmaðurinn þarf að mæta á hádegisverðarfundi á fimmtudögum í þægilegu umhverfi, bragðgóðar veitingar í boði RVK eru fastur liður, fyrir fundarsetuna fær starfsmaðurinn greitt 223.000.- krónur á mánuði.  Starfsmaðurinn getur  auðveldlega sinnt öðru starfi  100% og ófá dæmi um slíkt enda ekki um fulla vinnu að ræða.

Hinn starfsmaðurinn er sorphirðir hann skilar 160 tímum á mánuði trúlega tíu sinnum fleiri en hinn  starfsmaðurinn hjá sama fyrirtæki. Starfið fellst í að hann sækir ruslatunnur (60kg.) í sorpgeymslur og dregur þær að gangstétt hengir á bílinn, skilar tómum tunnunum síðan á sinn stað. Umhverfið í ruslageymslum er eigi hugguleg og lyktin ógeðsleg en á móti kemur ferska loftið milli húsanna. Fyrir viðvikið fær starfsmaðurinn um 167.000.- krónur á mánuði. Eitt hlé á dag í 20 mín, engar veitingar í boði fyrirtækisins. Ekki vinnuskór, stígvél og það sem verra er að í haust hafa regngallar verið ófáanleigir og sorphirðar borgarinnar þurft að útvega þá sjálfir í úrkomunni undanfarið. Sem er metúrkoma samkvæmt mælingum

Ég veit ekki hvaða búnað fundafólkið þarf, trúlega eina fartölvu og síma, ég hef heldur ekki hugmynd um hvort þau þurfa að bíða eftir vinnutækjum  en tel það ólíklegt 

Annað sem er áhugavert í þessum samanburði er að varaborgarfulltrúinn þarf að vera verkefnalaus og má þá alls ekki að sitja í neinu ráði, til að vera með sömu laun og sorphirðirinn.150.000.- kr. á mán!!! fyrir að gera ekki neitt Shocking

Getur verið að varaborgar fulltrúinn sé tíu sinnum mikilvægari fyrir borgarbúa en sorphirðirinn ? 

Eða er þetta enn ein sönnun þess að flokkakerfið er rotið bitlingakerfi ? 


10 litlir negrastrákar

Ég fór í MM á laugarvegi á smábarnadeildina, til að skoða negrabókina ....... Skrítið að hvergi er minnst á höfundinn á kápu aðeins teiknarann. Saurblaðið innheldur sérstæðan texta, Muggur leikur þar aðalhlutverk. (myndir má stækka með því að smella á...

54%

Í blaðinu í dag er frétt um kynjahlutfall í nefndum og ráðum nýju borgarstjórnarinnar, sett fram á skemmtilegan hátt svona borgarstjórnar-tré á bls.6. Ég hef verið að rýna í hlutföllin mér til ánægu er tréð samtals 54% kvk og þá 46% kk Dagur er efstur...

Haustið heldur áfram

Það var mikið sem gladdi augað í Grasagarðinum í gær haustið með sinni rómantík, gróðurinn að sölna fræmyndun lokið og við tekur vetrardvalinn. Það besta við garðinn er að þar er að finna plöntur sem eru sjaldséðar hér heima Þessar bleiku og grænu baunir...

Er veturinn kominn? myndir frá Reykjavík

Ekki var hægt að gleðjast yfir hitastigi höfuðborgarinnar í dag mælirinn á +1°C það var aðeins skárra í gær, þá hjólaði þessi í borginni. Esjan í dag Þessi er að vakna Tyrkjalilja. Þessi líka... Frá laugarnestanga Að lokum þrjár úr...

Vilhjálmur, Bjarni, Friðrik, Haukur og Árni. RÚV sápan heldur áfram........

Var að horfa á imban, í tilefni af því varð ég að blogga Eftirfarandi kom fram í kvöldfréttum og kastljósi Vilhjálmur þekkir Bjarna Ármannsson af góðu einu. Vilhjálmur vissi ekkert um 20 ára binditíma- samning einkarétt á útrás OR með lógói og alles!!...

Afsakið mistök..........................

Hérna er þetta kennara-video Sem ég fann hjá frúnni sem er ekki á moggablogginu Kennarinn óborganlegi

Hver er maðurinn ?

Ég leita að persónu

Að...............................................skrifa

Að skrifa blogg er ekkert grín, allt sem inn er komið er komið til að vera nema það sem hverfur en það er sjónhverfing og blekking ein. Ég til dæmis er alger aumingi að skrifa ekki undir nafni.....smá eftirsjá þar en hvað um það, það er líka blekking,...

Breyttar reglur í samkvæmisleiknum: Hver er maðurinn ?

" Hver er Maðurinn ?" Vegna fjölda áskoranna hef ég í samráði við aðra ákveðið að rýmka reglurnar. Nýjar reglur: Hver keppandi má fá sex nei og fellur við það sjöunda. Koma svo

Hver er maðurinn ?

Blásið til leiks enn á ný tu tuuu tu rutu tuuuu............ Anna kastaði boltanum yfir til mín án þess að blikna, ég þekki fáa þekkta þannig þetta tók tíma en ég er viss um að þið klárið þennan fljótt. OK reglurnar eru einfaldar og þær sömu og venjulega...

Smá fuglaskoðun

    Fann Alex Hjá Gunnarisvíafara gleymdi mér alveg á YoyTupe.  Hér er meira með Alex sem mig langar að deila með ykkur. Þessi er líka sætur og þessi er nú enginn venjulegur stari  Þessi er trúlega handa JVJ  Smá fugladans   og ballett í lokin Góðar...

Hefur brugðist væntingum

Er ekki sá náttúru - talent sem menn bjuggust við

11. September 2001- 11. September 2007

Í tilefni dagsins langar mig (að þið sem hafið áhuga að kíkja á þessa stuttu ræmu um efnið. Ég fann hana á blogginu en man ekki lengur hjá hverjum en finnst hún Góð, Skilmerkileg og hæfilega löng  

önnur færsla

Nú verð ég að skrifa eitthvað hérna. Undanfarið hef ég verið að lesa blogg, upphaflega........ en nú er svo komið að ég er hreinlega farin að misnota síður góðra manna til að fá útrás. Persónulega ætlaði ég aðeins að þjálfa mig á lyklaboðinu, fljótlega...

önnur færsla

Nú verð ég að skrifa eitthvað hérna. Undanfarið hef ég verið að lesa blogg, upphaflega........ En nú er svo komið að ég er hreinlega farin að misnota síður góðra manna til að fá útrás. Persónulega ætlaði ég aðeins að þjálfa mig á lyklaboðinu, fljótlega...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband