Haustið heldur áfram
17.10.2007 | 01:39
Það var mikið sem gladdi augað í Grasagarðinum í gær haustið með sinni rómantík, gróðurinn að sölna fræmyndun lokið og við tekur vetrardvalinn.
Það besta við garðinn er að þar er að finna plöntur sem eru sjaldséðar hér heima
Þessar bleiku og grænu baunir til dæmis hafa mikinn sjarma....
.....eins og þetta sæta par sem passaði hvort annað, steggurinn hálfgerður monthani
Heppnin elti mig og ég náði mynd af Svartþresti, þeir voru þarna spakir... rótandi í laufinu eins og hinir spörfuglarnir....
Þessi Baldursbrá er sennilega í sinni síðustu umferð í ár.......eins og Morgunfrúin en hún skartar óvenju fögrum (dökkum) lit í garðinum....trúleg annað afbrygði en það sem mest er af hér á landi.
Flottur garður Grasagarðurinn.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Ferðalög, Lífstíll, Menning og listir | Breytt 3.12.2007 kl. 18:52 | Facebook
Athugasemdir
Flottar myndir
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 17.10.2007 kl. 09:18
Fallegar haustmyndir! Haustið er svo fallegt í sinni litadýrð! Takk fyrir mig
Sunna Dóra Möller, 17.10.2007 kl. 09:27
Mér hefur aldrei dottið í hug að fara í grasagarðinn eða neinn grasagarð að haustlagi. Takk fyrir myndirnar, baunirnar eru flottar.
Kolgrima, 17.10.2007 kl. 10:20
Voðalega ertu dugleg með myndavélina. Alltaf gleymi ég minni.
krossgata, 17.10.2007 kl. 12:39
Alveg hreint frábærar myndir! Myndavélin er svo sannarlega skemmtilegur ferðafélagi eins og sést á mínum síðum er hún yfirleitt með mér líka
Þú ert greinilega mikið fyrir gróður og garða, ég var einmitt að velta fyrir mér hvort hægt sé að taka inn nýpur og planta út rósafræjum í vor (eða haust), veist þú eitthvað um svoleiðis aðferðir?
Ragnhildur Jónsdóttir, 17.10.2007 kl. 14:06
Móna og Sunna, Þakka hrósið
Kolgríma, baunirnar eru næstum tregafullar bleiku minntu mig á mánuð brjóstakrbbameins og grænu á ORA
Krossgata, ég gleymi henni nú stundum líka
Varðandi rósir Ragnhildur, veit ég að hægt er að taka græðlinga á vorin, nípurnar er aftur á móti lokuð bók hjá mér. En trúlega er haustið betri tími (all natural)en frostið gæti verið vandamál...... kannski bara að prófa uppviðhúsvegg og víðar og sjá til.. ótrúlegustu hlutir gerast í görðum...
Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 17:53
Sirrý þetta er allt að koma þessir Tyrkjalaukar eru nú dáldið spes
Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 17:56
Ekki laust við að ég finni fyrir heimþrá að skoða þessar myndir hjá þér, ansi ertu laginn með vélina
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 17.10.2007 kl. 19:54
Takk Krummasnilli, ég hef verið að æfa mig í 33 ár . Tíminn flýgur, njóttu þess að vera í útlöndum og gleymdu heimþránni rétt á meðan.
Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 21:18
Sæl Fríða , þetta eru æðislegar myndir
Guðný GG, 18.10.2007 kl. 13:59
Snilldar myndir.
Jens Guð, 18.10.2007 kl. 20:40
Takk fyrir
Fríða Eyland, 19.10.2007 kl. 14:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.