önnur færsla
7.9.2007 | 02:13
Nú verð ég að skrifa eitthvað hérna.
Undanfarið hef ég verið að lesa blogg, upphaflega........ En nú er svo komið að ég er hreinlega farin að misnota síður góðra manna til að fá útrás.
Persónulega ætlaði ég aðeins að þjálfa mig á lyklaboðinu, fljótlega var nú samt komin pólitísk skítalykt af mínum skrifum ölluheldur athugasemdum, svo í gær eða var það í fyrradag var svo komið að ég var farin að skrifa hálfvelgjulegar dagbókarfærslur inná annarra manna síður.
Þetta var hálf ómeðvitað ég var orðin háð þessu og farin að vaða í villu ekki satt?
En innst inni er ég svo sem ekkert að drepast úr móral útaf þessu. Flokka þetta sem byrjendamistök mér til hughreystingar og blæs á það - burt flogið.
Mig langar að nota tækifærið og þakka bloggurum fyrir skrifin öll, misjöfn af öllu tagi samt eru nokkur mál sem kitla meir en önnur svo allir brandararnir hjálpi mér allir heilagir mörghundruð hvern einasta dag, hvað er betra í morgunsárið en brandari ?
Rauðsokkurnar systur mínar fá líka heillaóskir. Ég fullyrði að listinn yfir hugarfarsbreytingarnar sem glaðvöknuðu á útifundinum fræga er ótæmandi auðlind.
Það er ekki orðum aukið að þjóðin er á toppi heimsins, ekki aðeins í landfræðilegu tilliti; hugmyndin um jafnrétti kynjanna olli kúvendingu meðal okkar og við njótum nú ávaxtanna.
Allar rauðsokkur, kærar þakkir fyrir að halda áfram - Áfram stelpur. Síðan verð ég að þakka fyrir stórskemmtilega lesningu ekki síst um trú- og heimspekiflokkum.
Ég er ekki viss um að þetta sé góð önnur færsla, las hjá einhverjum að langar færslur væru .............fráhrindandi en ég er aðlaðandi hvernig sem á það er horft
Góðar stundir
Meginflokkur: Lífstíll | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt 3.12.2007 kl. 19:21 | Facebook
Athugasemdir
Elsku fríða mín.. Þetta var alveg ágæt færsla hjá þér... og þú varst ekkert að misnota síðuna með því að tjá þig á hana....
getur verið að fullkomnunaráráttan hrjáir þig dálítið ?að ekkert sé nógu gott fyr en það er fullkomið ?
halltu bara áfram að skrifa .. það er gaman að heyra þín innleg...
bíddu þegar þú talar um stóra bróður... þá áttu ekki við stóra bróður í orðsins fyllstu merkingu er það ? ..... ég held að þú þurfir ekkert að hafa áhyggjur af því að rífa kjaft... það er ekkert skemmtilegra en að rífa kjaft... ég sjálfur drulla yfir allt sem mér sýnist .... fer bara eftir vindátt og í hvernig skapi ég er í.
Brynjar Jóhannsson, 9.9.2007 kl. 00:06
Texti athugasemdar
Takk fyrir vinsemdina Brilli
Æi kannski er þetta bara ímyndunarveiki í mér... kannski ég ætti að skrifa færslur um perrana og hvernig þeir komast upp með hlutina ...kannski um saksóknara sem vísar frá stærstum hluta mála er varða barnaníðinga og hvernig lögreglan brýtur lög gagnvart lituðum útlendingum og íslendingum.....eða hvernig Landsvirkjun ákveður að gera ekki kröfur á þá sem seldu þeim land sem þau áttu ekkert í....eða reykjavíkurborg sem lætur henda fólki út ef það borgar ekki leiguna ...eða Féló sem reiknar 150 þús.kall á fjögurra mannafjölskyldu.......og hafa allt á hornum mér eða hajda áfram að mjálma um ekki neitt eins og hingað til
Fríða Eyland, 9.9.2007 kl. 00:49
Fríða Eyland..
þetta er allt spurngingin hvernig þú segir það... og þú þarft ekki eingöngu að tjá þig um hið neikvæða..... þú veist lífið getur líka verið fallegt.. Ég held að þú þurfir ekki að hafa neinar tejandi áhyggjur ef þú heldur þig við það að vera málefnaleg......
Brynjar Jóhannsson, 9.9.2007 kl. 08:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.