Takk fyrir Björgólfur
7.11.2008 | 22:19
Fyrir tæpum mánuði sendi ég út boð til Björgólfs og nú virðist sem hann hafi svarað kalli mínu hálfa-leið
en það var svohljóðandi
Björgúlfur bjargaðu þessu seldu fótboltaliðið
Björgúlfur þú getur sjálfur borgað þessar tryggingar í UK ....Icesave vegna þess það er ekki okkar að borga það sem þú átt fyrir.
Semsagt við sem skuldum ber ekki skylda til að borga skuldir fyrir þá sem eiga fyrir sínum að nota skattinn á þennan hátt veldur einungis ólgu og reiði skattgreiðandi vegna þess að reglurnar sem okkur ber að hlíða eru gróflega brotnar.
Skatturinn var ekki borgaður til að bjarga einstaklingum sem hafa það gott og geta borgað sitt, skatturinn er stoð samfélagsins og jöfnunarsjóður velferðar, sameiginlegur alla leið.
Þú mátt til að selja Westham og málinu eytt,
Kveðja
Mér þótti þetta heldur frekt og snyrti aðeins til og lét aðra inn í staðinn
Láta fótboltaliðið ganga uppí tryggingarreikniseiganda, Ef einhver vill kaupa Westham sem stendur sig vel í deildinni, er í Evrópusæti og alles þá hljóta að fást nokkrir $ fyrir það.
Losa okkur undan okinu takk. Láta fótboltaliðið ganga uppí tryggingar í uk og losna við leiðan
Nú verður að taka eitt skref í einu
Nú er von mín að sú að ósk mín rætist alla leið....
Bloggar | Breytt 20.8.2012 kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Á morgun eru mótmæli sem ég má ekki mæta á
7.11.2008 | 14:37
en þar sem síður í mér og þrýstingur sjaldan náð öðrum eins hæðum verð ég að láta eitt og annað flakka til að létta á mér, eins og hekla sem vonandi gýs lengi næst þannig að hægt verði að græða dálítið á því. Ég sé strax tækifæri í gosinu en að ýmsu þarf að athuga tildæmis að koma húsbúnaði í tómu blokkirnar hjá álverinu sem skila miljóna tapi eins og allt sem ekki er í rekstri. síðan þessar brunaútsöluhugmyndir eru alveg útí hött. Lúxusbílarnir verða dýrir í leigu og skila inn $$$$$$$ já vonandi gýs hún lengi hálfsársgos gæti gert gæfumuninn.
Þar að auki eru mótmælin máttlaus og einhvernvegin ekki eins og kannski maður bjóst við, það vantar kaffisölumenn og grillmeistara í sjálfboðavinnu en grillin verða að koma fyrr en síðar það er lífhættulegur kuldi á klakanum, semsagt grill til að ylja ´sér við fyrir skræfur.
Síðan er þetta með orðið, gott væri að það yrði gefið frjálst og fólk með hugmyndir og þekkingu mæta til að koma sínum sjónarmiðum fram það er að mínu mati eitthvað sem vantar fólk sem þorir gæti mælt.
Hvar er allt þetta unga fólk sem háskólarnir okkar hafa verið að útskrifa undanfarið ég sakna að heyra frá þeim unga fólkinu með ungana sína hvaða breytingar vill það sjá uppá pall með ykkur, þannig að hægt verði að kjósa nýja tíma þá verður eitthver að bjóða sig fram
Við þessar aðstæður sem við erum núna í hafa aldrei verið áður til í heimi hér það er nú málið, þetta ættum við að nýta okkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Og rafbyssuvæða hina sem fyrir eru
7.11.2008 | 14:00
ekki veitir af þar sem mótmæli verða ákaft háværari, síðan verða héraðslögrglumennirnir bara að blandandi geði við æsta atvinnuleysingjana...I DÓNT TINK SÓ
REGLUGERÐ um héraðslögreglumenn. I. KAFLI Hlutverk og starfssvið. 1. gr. Hlutverk héraðslögreglumanna er að gegna almennum löggæslustörfum, þegar á þarf að halda, þar á meðal að halda uppi reglu á mannfundum og skemmtunum undir stjórn lögreglumanna. 2. gr. Lögreglustjóra er heimilt að ráða allt að 8 héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra. 3. gr. Lögreglustjóra er heimilt að kalla héraðslögreglumenn til aðstoðarstarfa þegar vinnuálag er mest, til viðbótar þeim lögreglumönnum sem heimild er fyrir í hverju umdæmi. Héraðslögreglumönnum er ekki ætlað að leysa af lögreglumenn vegna aðstæðna sem taldar eru í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga. II. KAFLI Ráðning og starfskjör. 4. gr. Umsókn um starf héraðslögreglumanns skal leggja fram á umsóknareyðublaði um lögreglustarf, og skila þá jafnframt fullnægjandi vottorðum í samræmi við 5. gr. 5. gr. Héraðslögreglumenn skulu fullnægja þessum skilyrðum: a. vera á aldrinum 20-35 ára við fyrstu ráðingu, b. vera íslenskir ríkisborgarar, og hafa ekki hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, c. vera andlega og líkamlega heilbrigðir og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis, d. hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri, hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli auk ensku eða þýsku, hafa almenn ökuréttindi til aksturs bifreiðar og vera syndir. 6. gr. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við héraðslögreglumenn með 3 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Við ráðningu skulu héraðslögreglumenn vinna heit skv. 29. gr. lögreglulaga. 7. gr. Fyrir þá kvöð, sem hvílir á héraðslögreglumönnum, að þurfa ávallt að vera reiðubúnir að sinna verkefnum, skulu þeir fá sérstaka þóknun sem skal ráðast af þeim kjarasamningi sem í gildi er á hverjum tíma milli Landssambands lögreglumanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Að auki skulu þeir fá greitt fyrir unnar vinnustundir samkvæmt sama kjarasamningi. 8. gr. Héraðslögreglumanni skal afhentur einkennisfatnaður og annar nauðsynlegur búnaður, þegar skriflegur ráðningarsamningur er gerður. Um einkennisföt, klæðaburð og búnað héraðslögreglumanns gilda ákvæði reglugerðar um einkennisbúninga, merki og búnað lögreglumanna. 9. gr. Námskeið fyrir héraðslögreglumenn skulu haldin á vegum Lögregluskóla ríkisins og er héraðslögreglumönnum skylt að sækja slík námskeið eftir ákvörðun lögreglustjóra. Skólanefnd lögregluskólans ákveður hvenær og hversu oft slík námskeið eru haldin og hvaða námsgreinar skulu kenndar. III. KAFLI Réttindi og skyldur. 10. gr. Héraðslögreglumenn njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og fastráðnir lögreglumenn á meðan þeir eru að störfum. Héraðslögreglumenn fara með lögregluvald þegar þeir eru að störfum. IV. KAFLI Gildistaka. 11. gr. Reglugerð þessi, sem sett er skv. 3. mgr. 10. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996, öðlast gildi 1. júlí 1997. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um héraðslögreglumenn og aðra afleysingamenn í lögreglustarfi, nr. 284 29. maí 1981. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 23. apríl 1997. Þorsteinn Pálsson. Símon Sigvaldason. Word útgáfa af reglugerð - 283-1997.doc Breytingar: 961/2008 - Reglugerð um breyting á reglugerð um héraðslögreglumenn nr. 283/1997. Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000 Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dkm.stjr.is Prentvænt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)