Vilhjálmur, Bjarni, Friðrik, Haukur og Árni. RÚV sápan heldur áfram........
16.10.2007 | 00:23
Var að horfa á imban, í tilefni af því varð ég að blogga
Eftirfarandi kom fram í kvöldfréttum og kastljósi
Vilhjálmur þekkir Bjarna Ármannsson af góðu einu.
Vilhjálmur vissi ekkert um 20 ára binditíma- samning einkarétt á útrás OR með lógói og alles!! ekki heldur að hlutur rvk í hitaveitu suðurnesja færi allur til samruna REI og GGE voru svífandi yfir vötnum á þessum heimilislega fundi ?
Bjarni Ármannsson segir að þeir hafi farið yfir minnisblaðið saman, á löngum fundi heima hjá Villa ek veit eii hvur lýgur en á bágt með að trúa báðum.
Bjarni segist hafa verið vel alin upp og notar ekki orð eins og "Vilhjálmur er ekki að seigja satt " Vilhjálmur rak Hauk vin sinn til málamynda. Annars er Villi oftast kurteis í orði eins og Bjarni
Haukur seigir að Vilhjálmur hafi vitað um 20 ára einkarétt, er hanna- að hefna sín ?
Friðrik forstjóri landsvirkjunar tala um að einkavæðing sé nú og framtíðin, ekki verður aftur snúið. Einnig að verkefni eftir nokkur ár, verða uppurin eftir 5 ár hér á landi hélt svo áfram með útrásina og nauðsyn hennar sagði að umræðan kemur óorði á útrás í orkugeiranum. og var Þeir hjá landsvirkjun skapa raforku fyrir stóriðjur, hann sagði það gott að það standi ekki til að virkja hér bráðlega, enda var kjósendum lofað því af öllum flokkum nema framsókn sem vildi "áfram gakk, ekkert stopp" eða eitthvað þannig til að laða að kjósendur en það gekk ekki sem skildi.
Árni bæjarstjóri reykjanesbæjar sagði okkur að orkuveitu suðurnesja yrði skipt upp og einkavæðing væri framtíðin í orkumálum þá strax í framhaldinu birtist hafnfirðingur nokkur sem sagðist vera að skoða tilboð í hlut bæjarins í eigin orkuveitu, sprellar hafnfirðingarnir gleymdi að seigja frá hverjum til boðið er. það verður eitthvað að vera í fréttunum á morgunn..
Bjarni: "Ég var beðin um að gerast fjárfestir, Vilhjálmur og Haukur báðu mig um það" síðan vitnar hann í Friðrik, óheppilegt fyrir útrásina og óorði á OR osfr. osfr. Kaupir hann viðtöl þessi maður? og býr til heilu laugardagsþættina ?
Áfram heldur Bjarni, menn eru ekki að tjalda til einnar nætur, menn eru ekki að fara að selja 1.2.og 3, ....eða hvað ?
Getur verið að málþófið borgi sig fyrir einhverja ?
Ég er hissa á þessu atriði á RÚV 2/3 af tímanum... markaðsfræðingur hvar ertu !!!
Hvað er í gangi sér einhver plottið ?
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Trúmál og siðferði, Dægurmál, Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.12.2007 kl. 18:58 | Facebook
Athugasemdir
Ótrúlegt bull sem fáir skilja, allavegana ekki ég. Vona samt að ljótu kallarnir í málinu verði stoppaðir, hverjir sem þeir eru.
Ásdís Sigurðardóttir, 16.10.2007 kl. 00:52
Ég þarf hálfpartinn að halda fyrir augun þegar þetta er í sjónvarpinu, mér finnst þetta svo vandræðaleg!
Kolgrima, 16.10.2007 kl. 01:30
en skiljið þið plottið?
Fríða Eyland, 16.10.2007 kl. 01:44
Þetta er ljóta málið. Ég verð að ganga til liðs við nýja flokkinn hjá Önnu bloggvinkonu minni þá fæ ég trúlega plottið uppá borðið, allavega treysti ég önnu og félögum.......
Fríða Eyland, 16.10.2007 kl. 05:29
Ég hef því miður takmarkaðan aðgang að fréttum hérna í Finnlandi, en það sem ég veit er þess eðlis að normal maður roðnar af skömm, sveiattann.
Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 16.10.2007 kl. 07:37
Ég fatta ekki plottið og er löngu búin að missa þráðinn.....! Hver sagði hverjum hvað hvenær og hvers vegna......er alveg hulið fyrir mér
Sunna Dóra Möller, 16.10.2007 kl. 08:58
Svarið er:
Vertu það sem þú vilt virðast vera - eða ef þú vilt fá þetta einfaldað. Aldrei hugsa þér þig vera ekki öðruvísi en það sem gæti virst vera öðrum það sem þú værir eða gætir hafa verið ekki öðruvísi en það sem þú hefðir verið myndi virðast þeim vera öðruvísi.
Ef þú skilur þetta þá veistu allt.
krossgata, 16.10.2007 kl. 09:46
Kæra krumma. Ef þú hefur áhuga þá er aðgangur að fréttum rúv inná ruv.is. Samt skil ég vel að þú hafir ekki tíma til að fylgjast með dellunni sem er í gangi á klakanum.
Kæra Sunna það gerir málþófið, ekki fyrir venjulegt fólk að eltast við þessa sápu dag eftir dag.
Krossgata speki þín er góð og djúp, þarf að lesa þessi frómu orð aftur og aftur.....
Fríða Eyland, 16.10.2007 kl. 15:07
Segi eins og Kolgríma.... manni finnst þetta bara orðið vandræðalegt fyrir alla aðila
Jónína Sólborg Þórisdóttir, 16.10.2007 kl. 18:00
Grunsemdir mínar:
Bjarni er með óhreint mjöl og á kafi í plottinu með hinum "fjársterku". Þeir sögðu kjörnum fulltrúum eins lítið og þeir komust upp með og höfðu öll minnisblöð og tilllögur eins óljóst orðaðar og þeir þorðu. Vilhjálmur gleymdi sér og vann ekki heimavinnuna, trúði þessum "góðu" mönnum í siðblindni því það sem hann fékk að vita hefði átt að vera nóg fyrir siðsjáandi mann til að vakna.
Nú á að segja okkur að allt sé að verða ónýtt vegna umræðunnar, hvers sök er það? Okkar? Nei þeir verða að þola þetta og þó ekkert verði úr þessum gullkálfi þá er almenningi sama því okkur var aldrei ætluð hlutdeild í þessu.
PUNKTUR Í BILI
Kristjana Bjarnadóttir, 16.10.2007 kl. 18:05
Góð Kenning Kristjana, seinniparturinn góður ég vona að úr honum rætist
Fríða Eyland, 17.10.2007 kl. 01:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.