Þessi frétt um Jón Sverri Bragason "Nonna " birtist hvergi nema á mbl.is hálfum mánuði síðar

bilde_870069.jpgHéraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á sextugsaldri,

Jón Sverri Bragason, í fjögurra ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn þroskaskertum ungum pilti. Hann var einnig dæmdur til að greiða piltinum 1,5 milljón króna í miskabætur. Brotin áttu sér stað þegar pilturinn var þrettán til fimmtán ára. Jón Sverrir sem er með lögheimili í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafði í mörg skipti munnmök við piltinn og fékk hann fjórum eða fimm sinnum til að hafa við sig endaþarmsmök. Sannað þótti að hann hafi tælt piltinn til kynmakanna með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans og tölvufíkn. Oftast greiddi hann fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum. Málið komst upp þegar móðir piltsins var vör við að hann fór óvænt að heiman frá sér eftir kvöldmat og sagðist ætla í gönguferð. Henni þótti grunsamlegt að hann færi í slíkar gönguferðir og fékk á tilfinninguna að ekki væri allt með felldu. Hún fékk grun sinn staðfestan þegar hún skoðaði tölvu piltsins. Þar voru vistuð samskipti hans við Jón Sverri, sem kallaði sig Nonna, þar sem þeir mæltu sér mót. Kom fram í samskiptum þeirra, að pilturinn fengi fimm þúsund krónur ef hann hefði endaþarmsmök við Nonna. Jón Sverrir kannaðist við að hafa ætlað að hitta piltinn og einnig að þeir hefðu áður hist. Hann sagði hins vegar ekkert kynferðislegt hafa átt sér stað þeirra í milli. Hafi þeir setið saman í nokkrar mínútur, keyrt stutta stund og að lokum fékk pilturinn tölvuleik sem Jón Sverrir keypti á ferðum sínum erlendis. Fjölskipaður héraðsdómur taldi hafið yfir skynsamlegan vafa, s.s. með tilliti til samskipta mannsins og piltsins í gegnum samskiptaforrit, að Jón Sverrir hafi brotið kynferðislega gegn piltinum. Brot hans hafi verið alvarleg og beinst að ungum, þroskaskertum pilt með áráttukennda hegðun. Jón Sverrir var einnig talinn hafa sýnt styrkan og einbeittan brotavilja við framkvæmd brotanna.


Þessi frétt um Jón Sverri Bragason var í vísi

Beint í meginmál síðu. Fréttablaðið, 30. des. 2007 06:00 Fljúgandi spilavíti fyrir einn ríkasta mann heims bilde_870065.jpgmynd Jón S. Bragason á og rekur JB Aviation í Dubai, fyrirtæki sem sérhæfir sig í ýmsum verkefnum tengdum flugi. Sheldon Adelson, sjötti ríkasti maður heims, fékk fyrirtækið til þess að breyta flugvél í fljúgandi spilavíti. „Þetta er ákaflega skemmtilegt og spennandi verkefni enda hafði ég ekki einu sinni hugmynd um að svona hlutir væru til," segir flugvirkinn Jón S. Bragason sem undanfarna 6-8 mánuði hefur unnið að því að innrétta flugvél sem „fljúgandi spilavíti" fyrir bandaríska spilavíta- og hóteleigandann Sheldon Adelson, sjötta ríkasta mann heims. „Ég er með fyrirtæki í Dubai, JB Aviation, sem sérhæfir sig í ýmsum verkefnum fyrir flugfélög og einkaaðila. Ég kynntist Adelson fyrir einu og hálfu ári síðan þegar hann var að leita að flugvélum. Hann keypti tvær notaðar af konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu og bað mig svo um að innrétta þær, aðra sem nokkurs konar VIP-vél og hina sem spilavíti. Við sjáum um tæknilegu hliðina en fáum innanhússhönnuði til liðs við okkur til að sjá um útlitið." Jón segir að þrátt fyrir auðæfin séu Adelson og hans menn þægilegir í samskiptum. „Það var mjög gott að vinna fyrir þá. Þeir sáu bara um sín viðskipti og létu okkur alveg um þetta. Það liggur gríðarlega mikil vinna að baki verkinu enda er vélunum bókstaflega slátrað og þær nánast hannaðar upp á nýtt. Við settum inn í þessar vélar nuddstofu, spilaborð og stóla sem hægt er að sofa í svo fátt eitt sé nefnt. Svo verður að vera fullkomið eftirlitskerfi eins og reglan er í spilavítum." Hver vél um sig kostar fullbúin litlar 200-300 milljónir íslenskra króna. Jón segist ekki vita annað en að þetta séu fyrstu fljúgandi spilavíti heims. „Þessi maður fær góðar hugmyndir og virðist vita hvað hann er að gera. Hann á miklar eignir í Las Vegas og opnaði nýverið spilavíti í Macau í Kína sem er næststærsta bygging heims og sú stærsta í Asíu. Nú ætlar hann að byggja annað eins í Singapúr enda eru fjárhættuspil vinsælli í Asíu en í Las Vegas. Þessi fljúgandi spilavíti verða notuð til þess að ferja spilara á milli Macau og Las Vegas. Þau verða þó eingöngu fyrir boðsgesti. Við vorum að klára fyrstu vélina en það er hugmyndin að breyta tveimur til að byrja með og sjá hvernig þær koma út." Vélarnar rúma um 40-60 manns og annan eins fjölda af starfsfólki. „Það þurfa að vera öryggisverðir og gjafarar í viðbót við hefðbundna áhöfn. Það er geysilega mikið í þetta lagt." Jón fær sjálfur að prófa að fljúga í vélinni því hann kemur til með að fara með í hennar fyrstu ferð til Kína í janúar. „Svo erum við að leita að fleiri vélum núna, þær verða líklega fjórar á endanum." sigrunosk@frettabladid.is

Af hverju kom fréttin af hálfum mánuði síðar á mbl ?

Og alls ekki á RÚV, DV eða Vísi!

Kannski er þetta ekki frétt  .

Sonur minn og ég viljum sjá frétt um þennan dóm í öllum fjölmiðlum !

Svo að allir viti hver sagði satt og hver ekki um það sem gerðist á fótboltamóti á Akureyri í Júlí 2006 !


Bloggfærslur 26. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband