DV segir fréttir í dag og ekki fréttir.
28.1.2008 | 14:12
en hvaða fjölmiðill landsins gerir það nú ekki.?
Fréttir af stríði framsóknar tengdadóttur og Össurar bera hæst í Dv. Fréttir af stríðinu við fíkniefnaneytendur, lögreglan hvetur lækna til að kæra hótanir ridalin fíkla, viðtal við landlækni Matthías Halldórsson ... Eru fréttir fréttablaðsins í dag..ef ekki væru bakþankaritara nokkrir og einstaka pistlar færi nú lítið fyrir fréttum í Fr.bl.
Snillinn
Þráinn Bertelsson er með gott innlegg á baksíðu Fr.b í dag með sitt sandkorn eða möl eða var það hnullungur, stelst til að stela greininni í heild sinni, enda snertir hún mig persónulega.
Bakþankar Þráins Bertelssonar
Í þróuðum löndum ríkir pólitískur stöðugleiki vegna þess að almenningur hefur lært að láta stjórnmálamenn í friði og skiptir sér ekki af því sem þeir taka sér fyrir hendur. Stöðugleiki merkir óbreytt ástand án framfara og byggist á gagnkvæmu samkomulagi um að hvor aðili um sig láti hinn njóta vinnufriðar. Hlutverk almennings í nútímaþjóðfélagi er að borga skatta en hlutverk stjórnmálamanna er að hafa vit fyrir fólki. MEÐAN ALMÚGINN sinnir vinnu- og neysluskyldu sinni án þess að mögla telja stjórnmálamenn ekki nauðsynlegt að setja strangar reglur um hvernig fólk hegðar sér þegar það er ekki á vinnustað sínum. Þetta fyrirkomulag er stundum kallað frelsi og tryggir almenningi margvísleg réttindi, svo sem að velja milli þriggja tegunda af stjórnmálaflokkum á fjögurra ára fresti. Tegundirnar sem í boði eru heita hægri, vinstri og miðja og samsvara hinum vinsælu bragðtegundum súkkulaði, jarðarberja og vanillu. ALMENNINGI sem í daglegu tali er nefndur skríll er í stórum dráttum heimilt að hegða sér að vild heima hjá sér og getur valið um fjölda sjónvarpsrása eða bölsótast nafnlaus á internetinu. Einu sinni á ári, fyrsta maí, er skrílnum heimilt að mála slagorð á skilti og fara í hópgöngu með lúðrasveit niður Laugaveginn. Fyrir daga raunveruleikaþátta í sjónvarpi var þetta býsna vinsælt en nú er svo komið að flestir gera sér ljóst að fyrirhafnarminna er að fylgjast með lífi annarra en að lifa sínu eigin. ÞEGAR ALMENNINGUR er með hávaða og læti er talað um skrílslæti. Skrílslæti eru heimiluð á íþróttaleikjum og skemmtistöðum og einnig á útisamkomum fyrstu helgina í ágúst. Fyrir utan að vera gagnslaus og ósmekkleg eru skrílslæti hættuleg lýðræðinu og hneykslanleg framkoma almennings í Ráðhúsinu núna í vikunni sýnir hversu aðkallandi það er að kaupa hingað nokkra gáma af taser-byssum. Leiðtogar almennings í Ráðhúsinu eiga rétt á að fá að vera í næði fyrir borgarbúum. Ráðhúsið er þeirra náðhús. (Náðhús er staður þar sem fólk á heimtingu á að vera í friði með allt niðrum sig).
Já það er mikið að gerast, ekki síst hjá valdstjórninni og veðurguðunum, glitský og hvað eina.
Landið og heimurinn allur er á ekki á
krossgötum heldur mislægum gatnamótum, .
Ég verð oft uppvís að því að ég farin hneykslast á heimskulegum fréttum og sjálfri mér að lesandi þær, fréttir um ekki neitt en það hefur oft komið fyrir mig
En þegar mötunin er svo mikil og stjörnudýrkunin að börn landsins standa í röðum til að fá eiginhandaráritanir þula og fjölmiðlamanna get ég ekki orða bundist .
Hvert stefnir þessi þjóð hugsa ég, er verið að búa til stjörnur, hvernig stjörnur ? Hvað er að þegar fólk sem ekkert hefur að seigja er endalaust í viðtölum í blöðunum.
Ég skil ekki hvað okkur kemur daglega líf þessa hóps við, væri ekki betra að vera laus við að vita hvort þula fari í líkamsrækt eða sund, hvort fréttamenn borði skötu eða drekki pepsí ...
Og til fróðleiks um taser byssur læt ég fljóta með myndskeið af notkun þeirra á almenning
Og annað af manni sem ekki spurði rangra spurninga.
Er það þetta sem við viljum hér ?
Ef ekki þá er undirskrifatalistinn gegn taser byssum að finna hér
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)