F r é t t a t i l k y n n i n g Nr.: 10/2008

 Efni: Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar 17. febrúar 2008

Stöðugleiki í efnahagsmálum er meginmarkmið ríkisstjórnarinnar enda stuðlar hann að auknum hagvexti og velferð til langframa.

Við núverandi aðstæður er afar mikilvægt að sköpuð séu skilyrði fyrir því að vaxtastig geti lækkað. Kjarasamningar til þriggja ára sem grundvallast á hóflegum kauphækkunum og verulegri hækkun lægstu launa stuðla í senn að auknum jöfnuði og jafnvægi í efnahagsmálum.

Ríkisstjórnin er reiðubúin, á grundvelli stefnuyfirlýsingar sinnar, að grípa til víðtækra aðgerða í því skyni að greiða fyrir gerð slíkra kjarasamninga.

Við vinnslu rammafjárlaga fyrir næstu fjögur ár mun ríkisstjórnin leggja 1. til grundvallar eftirfarandi markmið á sviði skattamála: \u0001 Persónuafsláttur hækki um 7 þúsund krónur á næstu þremur árum, umfram almenna verðuppfærslu.

Árið 2009 hækkar hann um 2.000 krónur, árið 2010 um 2.000 krónur og árið 2011 um 3.000 krónur. \u0001

Skerðingarmörk barnabóta verði hækkuð úr 100 þúsund krónum á mánuði fyrir einstaklinga í 120 þúsund krónur árið 2008 og 150 þúsund krónur árið 2009.

Sambærilegar fjárhæðir fyrir hjón hækka úr 200 þúsund krónum í 240 þúsund krónur árið 2008 og 300 þúsund árið 2009. Tekjuskerðingarhlutföll vegna annars og þriðja barns verði jafnframt lækkuð um 1% árið 2008. \u0001

Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir frekari aðgerðum til lækkunar vöruverðs, einkum á matvælum. Sérstaklega verða skoðaðar frekari lækkanir á tollum og vörugjöldum. \u0001

Tekjuskattur fyrirtækja verður lækkaður úr 18% í 15% frá og með tekjuárinu 2008 sem kemur til framkvæmda álagningarárið 2009.

2. Unnið verður að stefnumótun í húsnæðismálum þar sem skyldur hins opinbera verða skilgreindar og verka- og kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga endurskoðuð með jafnræði milli búsetuforma og einstaklingsbundinn stuðning að leiðarljósi.

Jafnframt mun ríkisstjórnin taka til endurskoðunar fyrirkomulag vaxtabóta og húsaleigubóta í samráði við aðila vinnumarkaðarins o.fl. Þá mun ríkisstjórnin beita sér fyrir eftirfarandi aðgerðum í samstarfi við sveitarfélög: Húsaleigubætur hækki og verði hámarksbætur 46 þúsund krónur \u0001 á mánuði í stað 31 þúsund króna.

Ennfremur hækki sérstakar húsaleigubætur og skilyrði fyrir þeim verði rýmkuð svo þær nái til fleiri heimila. Samanlagt geta almennar og sérstakar húsaleigubætur því numið 70 þúsund krónum á mánuði í stað 50 þúsund króna. \u0001

Aukinni eftirspurn eftir leiguhúsnæði verði mætt með rýmri veðheimildum á lánum til leiguíbúða og fjölgun lánsvilyrða með niðurgreiddum vöxtum til félagslegra leiguíbúða í 750 lán á ári í fjögur ár frá og með árinu 2009. \u0001

Ennfremur mun ríkisstjórnin beita sér fyrir eftirtöldum aðgerðum: \u0001 Eignaskerðingarmörk vaxtabóta verða hækkuð um 35% á árinu 2008. \u0001

Þá mun ríkisstjórnin beita sér fyrir því að stimpilgjöld falli niður vegna lána til kaupa á fyrstu fasteign. \u0001 Jafnframt verður komið á húsnæðissparnaðarkerfi með skattafrádrætti, fyrir einstaklinga 35 ára og yngri, til að hvetja til sparnaðar hjá þeim sem hyggja á fyrstu kaup eigin húsnæðis eða búseturéttar.

3. Atvinnuleysisbætur hækki til samræmis við hækkun lægstu launa. Jafnframt hækki tekjutengdar hámarksbætur um sama hlutfall.

4. Bætur almannatrygginga hækki í samræmi við gildandi lög. Þá mun nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðherra sem hefur það meginverkefni að gera tillögur um róttækar breytingar á almannatryggingakerfinu í því skyni að einfalda það skoða leiðir til þess að setja ákveðin lágmarksviðmið í framfærslu.

5. Samkomulag er milli samningsaðila að hefja uppbyggingu áfallatrygginga. Fyrirhugað er að leggja nýtt 0,13% launatengt gjald, áfallatryggingagjald, á launagreiðendur samkvæmt kjarasamningum aðila. Komi þetta til framkvæmda mun ríkissjóður leggja Endurhæfingarsjóði til sömu upphæð frá og með árinu 2009.

Ríkisstjórnin mun í tengslum við þetta beita sér fyrir lagabreytingum sem tryggi að greiðslur úr Endurhæfingarsjóði, sjúkra- og fræðslusjóðum stéttarfélaga sem ganga til greiðslu kostnaðar við endurhæfingu, heilbrigðisþjónustu og tiltekna þjónustu fagaðila ásamt starfsmenntun og fullorðinsfræðslunámskeiðum sem staðfest hafa verið af menntamálaráðuneytinu teljist ekki til skattskyldra tekna hjá viðkomandi einstaklingum.

Jafnframt mun ríkisstjórnin taka upp viðræður við aðila um samræmingu í skattalegri meðferð greiðslu kostnaðar úr þessum sjóðum vegna forvarna og starfsmenntunar

6. Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins eru sammála um eftirfarandi ráðstafanir og áherslur á sviði menntamála, með sérstakri skírskotun til menntunar fólks á vinnumarkaði með takmarkaða menntun: \u0001 Stefnt verði að því að eigi fleiri en 10% fólks á vinnumarkaði verði án viðurkenndrar starfs- eða framhaldsskólamenntunar árið 2020.

Markvisst verði unnið að því að skapa tækifæri og hvata til menntunar fyrir fólk sem er á vinnumarkaði og hefur takmarkaða menntun.

Þá eru fyrirhugaðar umbætur á framhaldsskólastigi sem leiða til þess að fleiri finni sér námsleiðir við hæfi og ljúki skilgreindu lokaprófi á framhaldsskólastigi. \u0001 Í

undirbúningi er löggjöf sem tryggir að allir hafi tækifæri til menntunar að loknu grunnskólanámi þar sem jafnræðis sé gætt varðandi kostnaðarþátttöku hins opinbera.

Samræmi verður tryggt í fjárhagslegum stuðningi ríkisins við nám á framhaldsstigi, háskólastigi og við starfsmenntanám. Útlánareglur Lánasjóðs íslenskra námsmanna verða yfirfarnar með \u0001 það að markmiði að gæta jafnræðis milli einstaklinga og hópa varðandi tækifæri til menntunar.

Í samræmi við boðaða stefnu ríkisstjórnarinnar verður þess gætt að kostnaður nemenda á framhaldsskólastigi vegna skráningar- og efnisgjalda verði óverulegur og haldið í algjöru lágmarki. \u0001 Framlög til símenntunar og fullorðinsfræðslu sem nýtist fólki á vinnumarkaði verða aukin í jöfnum framlögum um 300 m.kr. á næstu tveimur árum.

7. Ríkisstjórnin mun skipa starfshóp með aðild aðila vinnumarkaðarins sem falið verði að kanna hvort og þá með hvaða hætti sé unnt að tryggja að starfsmenn með lögheimili hér á landi sem eru að störfum erlendis fyrir dótturfyrirtæki íslenskra fyrirtækja geti viðhaldið réttindum í íslenska velferðarkerfinu.

8. Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir breytingum á skaðabótalögum í þá veru að meðábyrgð á vinnuslysum verði ekki felld á starfsmann nema tjónið verði rakið til ásetnings eða stórfellds gáleysis starfsmannsins.

Reykjavík 17. febrúar 2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nú er bara að bíða og sjá hvernig þeim tekst að framkvæma þetta og hvort staðið verður við allt.  Mér finnst nú reyndar vanta fullt af hlutum þarna inn en maður aldrei neinu.  Kær kveðja á þig vina mín.   Heart Glasses 

Ásdís Sigurðardóttir, 25.2.2008 kl. 00:55

2 Smámynd: Fríða Eyland

... Ásdís þú pssar no 4.  Bætur almannatrygginga hækki í samræmi við gildandi lög. Þá mun nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðherra sem hefur það meginverkefni að gera tillögur um róttækar breytingar á almannatryggingakerfinu í því skyni að einfalda það skoða leiðir til þess að setja ákveðin lágmarksviðmið í framfærslu. 

Fríða Eyland, 25.2.2008 kl. 01:04

3 Smámynd: Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir

Æi ekki eru þetta miklar launahækkanir.....er ansi hrædd um að þeir reyni að ná þessu til baka á einhvern hátt......svo mega bankarnir fara að  rífa í rassgatið á sér og endurskoða vaxtaokrið  sem þeir viðhafa.

Hrafnhildur Ýr Vilbertsdóttir, 25.2.2008 kl. 11:58

4 Smámynd: Anna

Þetta mun allt fara út í verðlagið. Eins og vanalega. Því miður.

Anna , 25.2.2008 kl. 12:20

5 Smámynd: Anna

Það segir efst að þetta sé í "vinnslu rammafjárlaga fyrir næstu 4 árin" Svo það geta líðið 4 ár fyrr en almenningu sér hækkun og breytinu á tillögum þessum. Mer finnst þessi rammafjárlaga áætlun illa unnin og ekki faglega gerð. Mjög loðin í þokkabót og óskýr. Anna Leikskólakennari.

Anna , 25.2.2008 kl. 12:31

6 Smámynd: Ingibjörg Friðriksdóttir

Ég þarf að fá mér betri gleraugu til að geta lesið þetta. 

Veit samt hvað þessi sáttmáli gengur út á.  Margt er ágætt og annað ekki eins gott, það er eins og það er.  Vonandi er þessir samningar til bóta, en ég er ekki sérlega bjartsýn.  Mér finnst vera veruleg firring í þjóðfélaginu.  En, hvað með það, finnst það hljóti að vera til bóta að hafa Samfylkinguna þarna inni í stað Framsóknarflokksins.

Ingibjörg Friðriksdóttir, 25.2.2008 kl. 12:50

7 Smámynd: Fríða Eyland

Hækkanirnar eru nú þegar komnar útí verðlagið, komu fyrirfram, verðtryggð lán hafa hækkað um 10% nú síðustu mánuði það þýðir ein milla á hverjar 10 sem skuldin eykst um jamms og 6000 kall á hana á mánuði þá eru kjarabæturnar horfnar útí veður og vind....síðan á allt annað eftir að hækka ég hef enga trú á öðru miðað við reynslu liðinna ára.

Fríða Eyland, 26.2.2008 kl. 14:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband