Og rafbyssuvæða hina sem fyrir eru

ekki veitir af þar sem mótmæli verða ákaft háværari, síðan verða héraðslögrglumennirnir bara að blandandi geði við æsta atvinnuleysingjana...I DÓNT TINK SÓ

 

 

REGLUGERÐ um héraðslögreglumenn. I. KAFLI Hlutverk og starfssvið. 1. gr. Hlutverk héraðslögreglumanna er að gegna almennum löggæslustörfum, þegar á þarf að halda, þar á meðal að halda uppi reglu á mannfundum og skemmtunum undir stjórn lögreglumanna. 2. gr. Lögreglustjóra er heimilt að ráða allt að 8 héraðslögreglumenn til starfa í umdæmi sínu, að fengnu samþykki ríkislögreglustjóra. 3. gr. Lögreglustjóra er heimilt að kalla héraðslögreglumenn til aðstoðarstarfa þegar vinnuálag er mest, til viðbótar þeim lögreglumönnum sem heimild er fyrir í hverju umdæmi. Héraðslögreglumönnum er ekki ætlað að leysa af lögreglumenn vegna aðstæðna sem taldar eru í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga. II. KAFLI Ráðning og starfskjör. 4. gr. Umsókn um starf héraðslögreglumanns skal leggja fram á umsóknareyðublaði um lögreglustarf, og skila þá jafnframt fullnægjandi vottorðum í samræmi við 5. gr. 5. gr. Héraðslögreglumenn skulu fullnægja þessum skilyrðum: a. vera á aldrinum 20-35 ára við fyrstu ráðingu, b. vera íslenskir ríkisborgarar, og hafa ekki hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum, c. vera andlega og líkamlega heilbrigðir og standast læknisskoðun trúnaðarlæknis, d. hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri, hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli auk ensku eða þýsku, hafa almenn ökuréttindi til aksturs bifreiðar og vera syndir. 6. gr. Gera skal skriflegan ráðningarsamning við héraðslögreglumenn með 3 mánaða gagnkvæmum uppsagnarfresti. Við ráðningu skulu héraðslögreglumenn vinna heit skv. 29. gr. lögreglulaga. 7. gr. Fyrir þá kvöð, sem hvílir á héraðslögreglumönnum, að þurfa ávallt að vera reiðubúnir að sinna verkefnum, skulu þeir fá sérstaka þóknun sem skal ráðast af þeim kjarasamningi sem í gildi er á hverjum tíma milli Landssambands lögreglumanna og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs. Að auki skulu þeir fá greitt fyrir unnar vinnustundir samkvæmt sama kjarasamningi. 8. gr. Héraðslögreglumanni skal afhentur einkennisfatnaður og annar nauðsynlegur búnaður, þegar skriflegur ráðningarsamningur er gerður. Um einkennisföt, klæðaburð og búnað héraðslögreglumanns gilda ákvæði reglugerðar um einkennisbúninga, merki og búnað lögreglumanna. 9. gr. Námskeið fyrir héraðslögreglumenn skulu haldin á vegum Lögregluskóla ríkisins og er héraðslögreglumönnum skylt að sækja slík námskeið eftir ákvörðun lögreglustjóra. Skólanefnd lögregluskólans ákveður hvenær og hversu oft slík námskeið eru haldin og hvaða námsgreinar skulu kenndar. III. KAFLI Réttindi og skyldur. 10. gr. Héraðslögreglumenn njóta sömu réttinda og bera sömu skyldur og fastráðnir lögreglumenn á meðan þeir eru að störfum. Héraðslögreglumenn fara með lögregluvald þegar þeir eru að störfum. IV. KAFLI Gildistaka. 11. gr. Reglugerð þessi, sem sett er skv. 3. mgr. 10. gr. lögreglulaga, nr. 90 13. júní 1996, öðlast gildi 1. júlí 1997. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um héraðslögreglumenn og aðra afleysingamenn í lögreglustarfi, nr. 284 29. maí 1981. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 23. apríl 1997. Þorsteinn Pálsson. Símon Sigvaldason. Word útgáfa af reglugerð - 283-1997.doc Breytingar: 961/2008 - Reglugerð um breyting á reglugerð um héraðslögreglumenn nr. 283/1997. Stjórnartíðindi - Skuggasundi - 150 Reykjavík Sími 545 9000 Bréfasími 552 7340 - Netfang: reglugerdir@dkm.stjr.is Prentvænt

Mynd003


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fríða Eyland

Engin smá mynd

Fríða Eyland, 7.11.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband